Gunnsý léttist:
Jamm, það fóru 400gr. í dag þrátt fyrir allt
…………………. fæ þetta ábyggilega í hausinn í næstu viku
En hvað um það það var í mínus þess vikuna svo ég er ánægð
Nótt Nótt!!!!!!!!!!!!!!!!
Gunnsý léttist:
Jamm, það fóru 400gr. í dag þrátt fyrir allt
…………………. fæ þetta ábyggilega í hausinn í næstu viku
En hvað um það það var í mínus þess vikuna svo ég er ánægð
Nótt Nótt!!!!!!!!!!!!!!!!
Gunnsý léttist:
-200gr. þessa vikuna, vonaðist eftir meiru en eftir 2 frekar stórar vikur þá bjóst ég alveg við þessu
23kg. farin í heildina
Bjarta hrópar af gleði:
Vá, hún Gunnsý mín náði frábærum áfanga í dag, og ég er örugglega jafnglöð ef ekki glaðari en hún, æðislegt.
Af minni vigtun er það að frétta að ég stóð í stað þessa vikuna og það er nú bara þokkalegt, eða maður verður að vera sáttur við það. En ég borðaði samt ekki mikið og ekkert páskaegg
en ég borðaði ekki nógu mikið grænmeti og svo datt ég í hel…. pepsimaxið!!!!!!!!!!!
Núna sit ég hér við tölvuna og er að reyna að borða allt sem ég á eftir af matseðli þessa dags. Er að verða búin að borða 300 gr. af grænmeti með dressingu, svo bíður mín skyrkakan hennar Gunnsýjar með jarðaberjum og þá á ég eftir 1 ávöxt og einhvern slatta af mjólkurskammti, úff púff
Og skyrkakan er júmmíjúmm, er ekki dásamlegt að vera ég og geta borðað og borðað
Og þessa viku skal ég standa mig og ég stefni á að minnsta kosti 1,1kg, því þá sést nýr tugur!!!!! Og þann tug man ég aldrei eftir að hafa verið í á fullorðins aldri
En þar til næst bestu kveðjur úr sveitinni
Gunnsý gortar
Komin í tveggjastafatöluna …………………….. 99.7 kg
og búin að misa 22.8 kg á 7 mánuðum
Gunnsý léttist:
Já, léttingur þessa vikuna, þrátt fyrir svakalegt sukk síðustu viku og fyllerí þar síðustu helgar
…………………… léttist um 1.2 kg sem gera 22.1 kg farin í heildina og vitið þið hvað vigtin sagði ……………………. hún sagði 100.4 kg og það er alveg svakalega stutt í 99una
Þetta var alveg til þess að koma mér af stað aftur og núna er ég að fara í páskafrí eftir morgun daginn og þá get ég haldið mataræðinu alveg 100% í 6 daga (vinn á leikskóla og verð alltaf að borða smá með börnunum) ……………………. þannig að vonandi verður næsta vigtun bara alveg frábær
Svo það er ekkert nema hamingja og ég ætla sko að gera mér rófufranskar í tilefni dagsins á eftir og kannski grilla mér kjúkling
Gunnsý skrifar:
-500gr. þrátt fyrir síðustu helgi
Datt sko alveg svakalega í það á laugardagskvöldið, það var óvissuferð í vinnunni og ég ákvað bara að taka mér smá frí frá þessu öllu og sleppa fram af mér beislinu og gera allt sem mér datt í hug og mér datt í hug að detta bara í það. Var alveg kóf drukkin og kom heim klukkan 6 á sunnudagsmorgun.
Og auðvitað var ég bara gegggjað veik á sunnudaginn, borðaði ekki neitt fyrr en klukkan 10 um kvöldið, hélt engu niðri, ekki einu sinni vatninu sem ég reyndi að drekka, keypti mér pizzu og nennti svo bara ekki að byrja á einhverju mataræði í gær, en dagurinn í dag hefur verið ágætur, svona upp að vissu marki, ekki 100% en samt alveg ágætur
Það er nú ekkert merkilegt meira að frétta, nema náttúrulega að hún mamma mín var líka í vigtun og það láku af henni 900gr. þessa vikuna (finnst ekki líkalegt að hún móðir mín hafa tíma til þess að blogga fyrr en í næstu viku)
Jæja, ætla að fara að elda mér einhvern mat, svona til tilbreitingar …………………. eða þannig þú veist
Gunnsý grætur:
Já, ég er sko með kökk í hálsinum núna
……………………… þyngdist um 900 gr. og ég hef bara ekki græna um af hverju
hef ekki gert neitt öðruvísi þessa vikuna heldur en aðrar vikur "grenj" ……………………… held ég eigi bara að vera í þriggjastafa tölu það sem eftir er
…………………………. á örugglega eftir að hjakka í sama farinu næstu mánuðina …………………………. væri að minnsta kosti alveg týbíst fyrir mig
…………………….. get aldrei klárað nokkurn skapandi hlut nema með hangandi haus
Svo það er bara dauði og djöfull á þessu heimili og ég bara nenni ekki blogga meira
BLESS
Gunnsý skrifar:
Var að mæla mig og á síðasta mánuði láku 12.5 cm af fitu af mér
ekki slæmt. Þá eru það samtalst 75.5cm síðan ég byrjaði farnir, reyndar alveg öruglega meira því ég er að nota tölur frá því síðasta vetur og þá var ég ekki eins stór og ég var þegar ég byrjaði nýjan lífstíl í september
…………. svo þetta er líklegast að verða komið nálægt hundraðinu sem ég er búin að missa í cm
Gunnsý skrifar:
Jamm, ég er ekki dáinn …………. sem betur fer
Fór í vigtun í gær og það fóru 400gr. ekki slæmt, þetta var litla vikan þannig að vonandi veður stór næst
………………………….. óskin er að komast í 99.eitthvað …………………… það væri sko bara langþráð stund í mínu lífi.
Ég hef verið að reyna að muna hvenær ég fór upp í þriggja stafa töluna og ég held það hafi verði fyrir svona 3 og hálfu ári síðan. Mig langar sko svo svakalega að ná þessu og það væri bara geggjað að ná því næsta þriðjudag, því ég á afmæli á mánudag og þetta yrði fullkomin afmælisgjöf
……………………. þá myndi ég líka standa við næsta markmið
En ég nenni ekki þessu rausi lengur ……………. ætla að fara að lesa Harry Potter (var að byrja á síðustu bók um helgina
)
Læt heyra í mér bráðlega, lofa að það líði ekki svona langt á milli skrifta
Bæbæ!!!!!!!!!!!!!!!!!
P.S.
Ég er búin að læka um rúmlega 7 í BMI tölu síðan ég hóf nýjan lífsstíl
…………………. ekkert smá HAPPY
![]()
ÍÍÍÍHHHHAAAA!!!!
Ég missti 2.2 kg og rauf 20 kílóa múrinn
Knúið af WordPress.com