M Æ Ð G U R N A R

9. september 2006

Ný byrjun

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Bjarta @ 9:35 pm

Jæja, þá er sukkinu mikla og langa, lokið!!!!!!!!!!!!!!!

Ég er núna í afeitrun, er hætt að borða nammi og kex og hef minnkað pepsi-max drykkju um að minnsta kosti helming.  Þetta hefur verið ömurlegt sumar með tilliti til áts og þyngingar, en það er engum um að kenna nema mér, ekki satt :(

En búið er búið og nú ætla ég að koma mér af stað aftur.  Er ekki alveg orðin dönsk aftur en hef tekið inn grænmeti aftur og svona ýmislegt annað ddv-vænt.

Hún Gunnsý mín er núna búsett í Flórens og það er mjög skrýtið, ég skrapp til Rvíkur á miðvikudaginn og ég hugsaði nokkrum sinnum: jæja, ætli Gunnhildur sé búin í vinnunni!!!!!!!!! en svo rann auðvitað upp fyrir mér að hún væri alls ekki á Íslandi.  En þetta hlýtur að venjast ;)

Sonsi hefur verið í boltanum og frjálsum í allt sumar, varla verið nokkuð gagn í drengnum ;)

Ljósið mitt er nú mikið til heima, en hún fór til Danmerkur og í Galtalæk og svo einhverjar heimsóknir til vinkvenna :)

Og svo örverpið, hún stækkar og verður frekari, (eða er það að vera ákveðin!!!!!!!!!) og vill bara komast í sund og leikskóla.  Ætli hún verði sunddrottning eins og Anja frænka :) ??? Og leikskólann dáir hún og dýrkar, þó svo að strákarnir sláist nú svolítið, hahaha ;)

Og svo stærstu fréttir sumarsins eru auðvitað þær að við hjónin tókum okkur sumarfrí :) :) :) Við fórum til Köben, og hvílík dásemd, hiti, sól, afslöppun, göngur, bátsferð, veitingastaðir, tívolí, verslunarferðir, o.fl.o.fl.  :) :) :) :)

Jæja, skjáumst nú vonandi oftar á næstunni, Bjarta að koma sér í gírinn!!!!

1 ummæli »

  1. Hæ Guðný mín gott að heyra frá þér og vita að þið séuð á lífi og hafið nóg að gera , héðan allt gott að frétta , alltaf styttist meira og meira í litla ömmubarnið á Egilstöðum, dafnar vel drengurinn hér ,,hann er einnig að verða mjög ákveðin og veit hvað hann vill.Hafið það sem best og gangi þér vel í baráttunni, veit hvað hún er erfið og auðvelt að missa fótanna fyrir framan ísskápinn. kveðja úr borginni. sjáumst vonandi fljótlega. Lovísa.

    Comment af Lovísa Guðmundsdóttir — 29. september 2006 @ 10:51 pm |Reply


RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Skrá ummæli

Knúið af WordPress.com