M Æ Ð G U R N A R

15. ágúst 2006

Nýtt plan!

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 10:47 pm

Ég fer ekki á Danska daga eins og áætlað var, heldur fer ég með bróður minn á Sauðárkrók á Íslandsmeistaramótið í frjálsum.

Mataræðið gengur vel í gær og í dag var næstum því 100%, smá hliðar spor en ekkert alvarlegt: aðeins of mikið brauð í dag og 1/8 of mikil mjólkurskammtur í gær :| ……………….. ekki stórvægilegt miðað við síðustu 6 vikur ;)

Ætla að fara að gera eitthvað, er farin að pakka niður  :) …………….. og íbúin að fara á sölu á morgun ;) ……………………… Nóg að gera  :D

14. ágúst 2006

Núna er ég ….

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 7:06 pm

…. komin með ógeð á sjálfri mér :(

Ég er byrjuð enn eina ferðina enn og ætla að halda mér á réttu róli núna fram að næstu helgi og þá er ég á Dönskum dögum og þá ætla ég ekki einu sinni að reyna að halda mig á mottunni :|

Síðan kemur næsta vika og þá ætla ég að halda mig á réttu róli þangað til ég fer út 1. september.

Svona er planið og ég SKAL, GET OG VIL :D

Knúið af WordPress.com