Bjarta niðurrignd játar syndir dagsins:
Já, rigningin var ótrúleg og át dagsins líka, engin óhollusta en alltof mikið borðað
Ég hefði getað haft þetta enn verra, t.d. langaði mig mikið í vélarís og nammi, en ég lét staðar numið við pylsu og langloku og svo grillaði ég í kvöld og þá borðaði ég alltof mikið. Ég vigtaði allt skilmerkilega og borðaði það með bestu lyst, en hvað gerðist, þegar ég fór að ganga frá tók átfíkillinn yfir og ég steytti úr hnefa kjöt og kartöflusalat
En það þýðir ekki að fást um það, nýr dagur á morgun
Annars fórum við mæðgur, ég, ljósið og örverpið, á Hvanneyri í dag og það var mjög gaman, margt að sjá og skoða og kaupa
á bændamarkaðnum. En það var alveg mögnuð rigning í dag, en hlýtt og logn, þannig að þetta var ekkert ógurlegt
Ég ætla að bjóða upp á skemmtilega nýjung í fermingunni, ég verð með geitaost og sennilega sauðaost líka!!!! Geitaosturinn er í fetaosti, meiriháttar góður
og sauðaosturinn er í camenbert, vantar svona viku í þroska en lofar virkilega góðu
Góða nótt, kæru blogglesendur, þið megið alveg kommenta
ef einhverjir koma þá hingað inn enn :0)
Heil og sæl dóttir!
Ég hef ekki farið inn á þessa síðu dögum saman. Hélt að þar væri ekkert að sjá en annað kom í ljós. Gott hjá þér að skella þér í gírinn aftur bæði í matarræði og skrifum. Hvað rigninguna snertir þá er hún að verða heldur þreytandi en þú getur þó huggað þig við það að sláttur verður ekki hafinn þann 17. og því hægt að einbeita sér að fermingu og afgreiða hana með stæl.
Hlakka til að sjá ykkur!!!
mamma
Ummæli af amma — 12. júní 2006 @ 10:11 pm |
Kæra sys
Mikið er gaman að lesa skrif ykkar á ný. Hef kíkt hér samviskusamlega, að ég hélt en skyndilega var alveg hellingur kominn.
Við hér í Søllerød Park sendum ykkur ástarkveðjur og hamingjuóskir til hans Brynjars Gauta. Gangi ykkur vel á laugardaginn – ég verð með ykkur í huga.
Kys og knus
Eitt stórt til Spora frá Geðdýrunum okkar.
Hanna & co.
Ummæli af Hanna — 14. júní 2006 @ 6:47 pm |
Frúin er svo forvitin að hún klikkar ekkert á að fylgjast með ykkur mæðgum
Ummæli af Frændi í þolló — 14. júní 2006 @ 11:23 pm |