Ég var að versla mér geggjaða tösku á netinu
þurfti nausynlega að kaupa fartölvutösku fyrir ítalíu ferðina mín, svo hún komist nú ósködduð alla leið.





Fæ hana í næstu viku og get ekki beðið
Ég var að versla mér geggjaða tösku á netinu
þurfti nausynlega að kaupa fartölvutösku fyrir ítalíu ferðina mín, svo hún komist nú ósködduð alla leið.





Fæ hana í næstu viku og get ekki beðið
Ég var að enda við að svolgra niður hrikalega góðum desert, appelsínu- og kanilís með súkkulaðisósu og ananas
Uppskrift:
125 gr. fjörmjólk
100 gr. létt vanillujógúrt
32 gr. sýrðurrjómi
50 gr. undanrennudruft
smá rjómadropar
smá appelsínudropar
sætuefni eftir smekk
1 tsk. kanill
Súkkulaði:
30 gr. klípa
5 gr. 100% kakó
sætuefni
rjómadropar
smá heitt vatn
Ó, guð minn góður hvað þetta var gott
Allt 100% þessa vikuna og núna er það bara helgin og ég er að vinna og er að vinna á kaffihúsi og ég verð bara að standsat freistinguna
og það verður erfit
Núna er ég búin að fá alls konar pappíra frá Ítalíu til þess að ég geti fengið landvistarleyfið
En núna bara nenni ég ekki að blogga og ætla fljótlega að fara í rúmið!
Heyri í ykkur síðar
Jamm, nýja átakið gengur líka alveg svona glymrandi, 100% dagur að kveldi komin og ég er búin með allt saman
(reyndar 1/2 ávexti of mikið, en það er nú ekki svo slæmt
)
Ég bara nenni ekki að skrifa meira, "ógisslega" þreytt
Laterzzzzz!!!!
100% hehehe
Fyrsti dagurinn í nýju átaki liðinn og hann var fullkomlega 100%
…………….. á bara eftir 1/2 líter af vatni eftir
Já þá er fermingu lokið og allt gekk þetta svo vel að við vorum eiginlega farin að búast við að eitthvað svakalegt myndi ske þegar á fermingu stæði. Allur undirbúiningur var búin kl 7 á föstudagskvöld (fyrir utan eitthvað smotterí eins og salöt og sósur sem við rimpuðum af á laugardags morgninum).
Drengurin fermdist og það fyrst sem hann upplifið eftir að vera komin í fullorðinnamannatölu var að fá púrtvín niður eftir fermingartreglinum (tók mynd af því bara til þess að vera leiðinleg hehehe
)
Veislan gekk bara alveg frábærlega, allt gekk eins og í lygasögu og voru bæði teknar fermingamyndir af Bryjnari og stúdenst myndir af mér …………… og þær eru bara geggjað flottar. Frændi okkar tók þær og hann er nú bara snillingur með kameruna
svo voru líka loksins teknar fjölskyldumyndir af okkur sem hefur nú bara aldrei verið gert, eða að minnst kosti aldrei almennlegar, en það er nú afstaðið og mikið held ég að hann Guðjón sé fegin (hann hrópaði ekki beint húrra þegar mamma sagði honum að það yrði tekin almennileg fjölskyldumynd af okkur
)
Svo varð nú barnið aldeilis töluvert ríkara eftir daginn, hann fékk:
Utanlandsferð í fótboltaskóla frá mömmu og pabba, ömmu og afa á Selfossi
Fjallahjól frá systkinum Guðjóns og fjölskyldum þeirra
Úr frá ömmu í Kópavogi
GSM síma frá okkur systrumnum
146.500 kr. frá hinum ýmsu aðilum og talan átti eftir að hækka eitthvað frétti ég
Kílómetra mæli á hjólið (er ekki viss frá hverjum það var)
Skyrtu og fótboltabindi
2 armbönd og
1 hálsmen
Bakpoka
Svo var það nú alveg öruglega eitthvað fleira en ég man bara ekki meir, kannski mamma skelli inn restinni þegar hún bloggar næst
En snúum okkur nú að alvarlegri málum, mataræði hefur verið ekki neitt og ég hef bara set upp í mig það sem mér hefur hentað núna síðustu 2 vikurnar eða svo, en núna er nóg komið og núna skal ég bara hætta þessu rugli og fara haga mér eins og manneskju aftur. Ég er ekki byrjuð að borða í dag (ligg heima veik) og ætla núna bráðum að fara að standa á fætur og gera mér eitthvað almennilegt að borða
Ég held nú samt að þrátt fyrir alla óregluna að ég hafi nú ekki þyngst mikið kannski nokkur hundruð grömm en það eru nú ekki 24 kg
Jæja hef ekki meira að segja í bili
Ciao
Bjarta reynir að standa undir væntingum:
Ég er að verða brjáluð á nettengingunni minni, bíð og bíð og ekkert gerist, þannig að það er ekki mjög hvetjandi til að reyna blogga, í gær slitnaði í miðjum tíðum og fl. þess háttar.
En ég get ekki hrósað mér af mataræði síðustu daga, en er þó ekki kolfallin og ég ætla að vera nokkuð afslöppuð fram yfir fermingu. Já, fermingin er alveg að bresta á og það lítur bara allt vel út. Örverpið er ofboðslega spennt, því málið er að hún fær að fara í NÝJA KJÓLINN, á fermingardaginn, hún telur niður en sonsi……… hvernig bregst hann við, jú er ofurkúl og finnst þetta aðallega standa í vegi fyrir fótboltaiðkun sinni!!!!!!!!!!
Nei, hann er nú voða glaður yfir þessu öllu, en alveg salírólegur, eins og hans er von og vísa. En það er svo brjálað að gera í fótboltanum að ég veit ekki hvernig þetta endar eiginlega
Á mánudaginn er hann að fara á knattspyrnunámskeið KSÍ, en þangað kemst bara besti strákurinn úr hverju félagsliði, fæddur 1992. Þetta er fimm daga námskeið og þarna verða landsliðsþjálfara og fleira og fleira!!!!! En auðvitað er þetta frábært og mikið upplifelsi
Annars er það helst að frétta að við settum kýrnar út í gærkvöldi, í fyrsta skiptið þetta sumarið (og vonandi ekki eina skiptið) og svo í dag var ekki hægt að setja þær út fyrir rigningu
Við heyrumst svo bara eftir fermingu og þá ætla ég að koma mér í alvöru gír í heilsuræktinni. ÞIÐ HEYRIÐ ÞAÐ UPP Á MIG!!!!!!!!!!!!!!!
Gleðilega 17. júní til ykkar allra, Bjarta
Bjarta niðurrignd játar syndir dagsins:
Já, rigningin var ótrúleg og át dagsins líka, engin óhollusta en alltof mikið borðað
Ég hefði getað haft þetta enn verra, t.d. langaði mig mikið í vélarís og nammi, en ég lét staðar numið við pylsu og langloku og svo grillaði ég í kvöld og þá borðaði ég alltof mikið. Ég vigtaði allt skilmerkilega og borðaði það með bestu lyst, en hvað gerðist, þegar ég fór að ganga frá tók átfíkillinn yfir og ég steytti úr hnefa kjöt og kartöflusalat
En það þýðir ekki að fást um það, nýr dagur á morgun
Annars fórum við mæðgur, ég, ljósið og örverpið, á Hvanneyri í dag og það var mjög gaman, margt að sjá og skoða og kaupa
á bændamarkaðnum. En það var alveg mögnuð rigning í dag, en hlýtt og logn, þannig að þetta var ekkert ógurlegt
Ég ætla að bjóða upp á skemmtilega nýjung í fermingunni, ég verð með geitaost og sennilega sauðaost líka!!!! Geitaosturinn er í fetaosti, meiriháttar góður
og sauðaosturinn er í camenbert, vantar svona viku í þroska en lofar virkilega góðu
Góða nótt, kæru blogglesendur, þið megið alveg kommenta
ef einhverjir koma þá hingað inn enn :0)
Bjarta bætir við:
Mig langaði svo í göngutúr og svo í heita pottinn á Lýsuhóli í kvöld að það var ekki eðlilegt
Hér er svo mikil þoka að ekki er hægt að fara í göngu á veginum, myndi bara vera slysagildra og svo reyndi ég að fá vinkonu mína með á Lýsuhól, en þá var hún stödd á Suðurlandi, er þetta ekki dæmigert, svona er þetta alltaf ef ég fæ einhverja hugmynd
Bjarta í þoku:
Já, hér er búin að vera svarta þoka í allan dag og hellings rigning, en logn og blíða að öðru leyti.
En að áti dagsins, átið var bara fínt, nánast 100%, smá íssletta sem rataði inn fyrir mínar varir, en ekkert alvarlegt
En karlinn minn skellti sér í gírinn líka, þannig að nú þarf ég að hugsa tvöfalt
Vigtun morgunsins var eiginlega bara ótrúleg 81,9kg, og það var aftur kíló niður, ég hlýt að hafa verið bara uppfull af bjúg, og einhverjum viðbjóði, því þetta er nú ekki normal vigtartap, en vissulega bara gaman að sjá vigtina fara svona hratt niður
Ég skellti í dönsku eplamúffurnar seinni partinn og þær eru alltaf jafn góðar, namm, namm.
Ég er núna aðallega í því að reyna að skipuleggja ferminguna á laugardaginn kemur, það gengur svona upp og ofan en allt hefst þetta nú ábyggilega samt. Á morgun ætla ég að skella mér í Borgarfjörðinn, á bændamarkað Búnaðarsamtakanna, (það verða samt engir bændur í boði)maður verður víst að sinna starfinu
Er ákveðin í því að kaupa mér nokkur sumarblóm og eitthvað fleira gott!!!
Sonsi og pabbinn fóru í golf í þokunni og vinnukonan fór með þeim, en þeir týndu henni!!!!!! Það voru ungir herramenn staddir á staðnum og rændu henni á ball!!!!! En það er nú bara gott, fínt að hún komist aðeins út á lífið, stúlkugreyið
Annars allt í þessu fína og við heyrumst annað kvöld, Bjarta
Knúið af WordPress.com