Bjarta léttist líka:
1,4kg fóru þessa vikuna, jibbíííí
Og ég sá langþráðan tug birtast á vigtinni, lokatugurinn
Þannig að það er bara bjart yfir í dag, skjáumst síðar, ég verð víst að sinna örverpinu núna.
Bjarta léttist líka:
1,4kg fóru þessa vikuna, jibbíííí
Og ég sá langþráðan tug birtast á vigtinni, lokatugurinn
Þannig að það er bara bjart yfir í dag, skjáumst síðar, ég verð víst að sinna örverpinu núna.
Gunnsý léttist:
-200gr. þessa vikuna, vonaðist eftir meiru en eftir 2 frekar stórar vikur þá bjóst ég alveg við þessu
23kg. farin í heildina
Gunnsý tjáir sig:
Var að horfa á TopGear áðan og geggjað geta flottir bílar verið svakalegt turn on
……………….. þegar kallinn inn í honum er það líka
………………… Þeim hefur tekist helvíti vel upp með þennan þátt ………………. ég var nú bara í hláturskrampa mest allan þáttinn ……………………. hann er alveg komin á listan yfir þætti sem mér finnst verðugt að horfa á
Mataræðið er búið að vera frábært þessa helgina (fyrir utan illa misheppnaðar prufur á alls konar kökum
) gerði geggjaða, grillaða smálúðu með grilluðu grænmeti og ég borðaði restina áðan og harðfisk í hádeginu
……………………… er eiginlega alveg húkt þessa dagana á harðfisk ……………….. held ég verði samt að byðja annað hvort ömmu og afa eða mömmu og pabba að versla hann fyrir mig af Einari "harðfisk" (passa samt að það sé í hófi til þess ég fari nú bara að þyngjast af harðfisk).
Núna er Bones að verða virkilega spennandi svo ég ætla að hætta þessu mali í dag
Ciao
(ítalskan er alveg að gera sig þessa dagana, er að byrja á ítölsku námsskeiði 4.maí
)
Gunnsý, nálægt dauða úr leti:
Jamm, ég bíð bara eftir því að ég nenni ekki að anda lengur, ég er svo geggjað löt þessa dagana. Ég er svo sem ekki búin að vera að svindla neitt í mataræðinu (eða ekki neitt mikið
) ……………….. var reyndar alveg smá dugleg í gær; fór að heiman klukkan 1 í gærdag og fór á Selfoss til ömmu og afa, afi skipti um altenator í bílum sem hann taldi ónýtan (ég þvældis fyrir á meðan) og síðan kom nú bara í ljós að mælirinn hans afa sem átti að segja til um hvort altenatorinn væri í lagi eða ekki var bara með ónýtar rafhlöður og það var bara ekkert að altenatornum sem hafði verið í bílnum
……………….. alveg tíbíst ……………… svo núna er bara ekkert vitað hvað er að bílnum …………………. vonandi endist hann til haustsins
Þegar heimsókn minn á Selfossi lauk keyrði ég í bæjinn og skrapp í heimsókn til hennar Höllu og þaðan fór í bíó með honum Ingólfi og sáum við myndina Failure to Launch með Matthew McConaughey og Sarah Jessica Parker sem er bara ógeðslega fyndin og meira að segja Ingólfur hló allan tíman og það er nú ekkert hvaða mynd sem er sem hann hlær að
.
Svo var það bara vinna í dag eins og venjulega, en guð hvað ég er glöð að það er föstudagur og ég sé komin enn og aftur í frí
Ég held að versti partur dagsins hafi verið að ég fékk tíma hjá tannlækni þann 12.maí
……………… ég er stax kominn með hnút í magan ………………. er ekki búin að fara til tannlæknis síðustu 4 árin og er komin með endajaxla vesen og þess háttar ……………….. mig er nú bara farin að finna til stax
"genj"
P.S.
Reiknaði út í gær að ég er búin að lækka um 7.5 í BMI síðan ég hóf nýjan lífsstíl í september
Bjarta óskar ykkur gleðilegs sumars:
Jæja, þá er áti þessa sólarhrings lokið, var að sporðrenna síðasta skammti, ananas og jarðarber með súkkúlaðirjóma
Já ég veit að þið öfundið mig, namminamm
Í tilefni sumarkomunnar grilluðum við kálfkjöt og lamb, en vegna fundar hjá mér og fjósverka hjá restinni af fjölskyldunni var þetta allt með seinni skipunum og því er ég núna verulega södd, úffpúff
Mataræðið gengur að mestu stóráfallalaust, í gærkvöldi sleppti ég mér að vísu lausri í pizzu og nýbakaðar kringlur vinnukonunnar. Málið var að við komum ekki heim fyrr en um átta í gærkvöldi af íþróttaæfingu sonsa og ég ákvað að kaupa bara pizzu innfrá og gerði það. En ég átti heim DDV-pizzu, en hvað svo…….. jú pizzan reyndist ekki vera með neinu grænmeti og ég varð svo vonsvikin, hélt að ég væri að fara að borða nánast tilbúna máltíð og ég var svöng og lyktin af nýbakaðri sjoppupizzunni varð mér að falli
En hvað um það í dag tók við flottur dagur að vísu fóru nokkrar flögur ofan í mig, við fengum semsagt eitt stykki búnaðarfélag í heimsókn að skoða fjósið og ég bauð upp á bjór, gos, flögur og nammi (notabene, ekki einn einasti bjór var drukkinn !!!! Ef þetta hefði verið búnaðarfélagið sem ég er í þá hefði kassinn sjálfsagt klárast, hahahahahaha
) En ég hefði getað dottið í nammið en ég gerði það ekki og ég er nú bara alltaf kát með mig að standast það
Á morgun fer ég suður á Hvanneyri en sem betur fer er búið að fresta fundi sem ég hefði hugsanlega þurft að fara á vestur í Ísafjarðardjúpi, honum var frestað vegna leiðinlegrar veðurspár, það spáir skítaveðri um helgina, ojbarasta
Bjarta hrópar af gleði:
Vá, hún Gunnsý mín náði frábærum áfanga í dag, og ég er örugglega jafnglöð ef ekki glaðari en hún, æðislegt.
Af minni vigtun er það að frétta að ég stóð í stað þessa vikuna og það er nú bara þokkalegt, eða maður verður að vera sáttur við það. En ég borðaði samt ekki mikið og ekkert páskaegg
en ég borðaði ekki nógu mikið grænmeti og svo datt ég í hel…. pepsimaxið!!!!!!!!!!!
Núna sit ég hér við tölvuna og er að reyna að borða allt sem ég á eftir af matseðli þessa dags. Er að verða búin að borða 300 gr. af grænmeti með dressingu, svo bíður mín skyrkakan hennar Gunnsýjar með jarðaberjum og þá á ég eftir 1 ávöxt og einhvern slatta af mjólkurskammti, úff púff
Og skyrkakan er júmmíjúmm, er ekki dásamlegt að vera ég og geta borðað og borðað
Og þessa viku skal ég standa mig og ég stefni á að minnsta kosti 1,1kg, því þá sést nýr tugur!!!!! Og þann tug man ég aldrei eftir að hafa verið í á fullorðins aldri
En þar til næst bestu kveðjur úr sveitinni
Gunnsý gortar
Komin í tveggjastafatöluna …………………….. 99.7 kg
og búin að misa 22.8 kg á 7 mánuðum
Gunnsý étur

Jarðaberjatertan hennsa SúperS ……………………………. bara geggjuð
………………………. ég er að springa
Bjarta ver sig:
Látið þið ekki svona við mig
Ég er bara alveg hrikalega bissýkona, en nú hef ég að vísu endurheimt nokkurn veginn eðlilegt líf aftur
Af mér er allt ágætt að frétta, mikilli fundartörn lauk núna um páskanna og svo höfum við hjónakornin verið ein heima síðan á skírdag, að vísu kom tengdamamma þá vestur með okkur en það er nú bara ágætt. Börnin eru sem sagt öll hjá afa og ömmu á Selfossi og það er sko mikið gaman
Meira að segja örverpið gat ekki beðið og hún spurði reglulega hvort hún væri ekki að fara núna…….. strax.
Mataræðið er að komast í góðan gír og ég fer í vigtun inn í Grundarfjörð núna á þriðjudögum út maí. Stefnan er að sjálfsögðu sú að reyna að komast sem næst kjörþyngdinni fyrir lok námskeiðisins
Ég er komin með aupair, og trúið þið því, það er sko mikill munur, ég skil ekkert í því að ég skildi ekki gera þetta mikið fyrr, en það er nú gott að vera vitur eftir á. Þannig að þið sjáið að þetta potast nú allt í rétta átt hjá mér, lífið
Læt þetta nægja í bili, ætla að reyna að fá mér eitthvað að borða, það er sko enginn annar hér sem hugsar fyrir því, það bíður bara liðið eftir því að ég segi: MATUR!!!!!
Nú stefni ég svo á að verða duglegri að blogga
Knúið af WordPress.com