M Æ Ð G U R N A R

29. mars 2006

Lélegur dagur

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 10:42 pm

Gunnsý skrifar:

Borðaði of mikið brauð, mjólkurskammt og fékk mér búðing sem ég held að sé bannaður (Odeka möndlubúðingur) :( en er þó búin að elda lax og helling af grænmeti sem endist fram að helginni :) ……………………. svo það verður ekkert nema feitur fiskur það sem eftir er vikunnar og svo ætla ég að nota eina af uppskriftabókunum og nýta mér vikuplan fyrir næstu viku til þess að hræra all rækilega upp í þessu venjulega mataræði mínu :|

Þetta er planið og ég vona að þetta komi einhverju af stað.

Allt vitlaust að gera í vinnunni, opið hús um helgina og allt á suðupunkti við undirbúing, og ég þarf að vera í vinnunni á laugardaginn líka á milli 10 og 12 og síðan verður farið beint í óvissuferð, sem, akkúrat eins og stendur, ég nenni ekki í :(   …………………… en það verður væntanlega til þess að það verður bara ennþá skemmtilegra :)

Og núna er ég orðin alveg drullu þreytt og ætl að fara að skríða upp í rúm því ég er alveg að sofan!

Góða Nótt og Sofið Rótt !!!!! 

28. mars 2006

ÖMURLEGT!!!!!!!!!!!

Flokkað undir: Um daginn og veginn, Vigtun — by Gunnsý @ 6:56 pm

Gunnsý grætur:

Já, ég er sko með kökk í hálsinum núna :( ……………………… þyngdist um 900 gr. og ég hef bara ekki græna um af hverju :( :( :( :( :( hef ekki gert neitt öðruvísi þessa vikuna heldur en aðrar vikur "grenj" ……………………… held ég eigi bara að vera í þriggjastafa tölu það sem eftir er :( …………………………. á örugglega eftir að hjakka í sama farinu næstu mánuðina …………………………. væri að minnsta kosti alveg týbíst fyrir mig :( …………………….. get aldrei klárað nokkurn skapandi hlut nema með hangandi haus :(

Svo það er bara dauði og djöfull á þessu heimili og ég bara nenni ekki blogga meira :(

BLESS 

27. mars 2006

Eitt ár “enn” liðið

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 8:40 pm

Gunnsý afmælisbarn skrifar:

C.a. 3 mánaða

Jamm, ég á ammli og eru orðin heil 22 ár síðan ég kom í þennan heim,
eftir langa og stranga fæðingu þá
loksins kom ég í heiminn (með smá hjálp samt) og guð hvað ég held að
hún móðir mín hafi verið fegin þegar þessu var lokið :D ………. enda
voru nú ekki svakalega mörg ár síðan hún hafði sjálf látið móður sína
ganga í gegnum það sama (14 ár, þar að segja). En þetta hafðist á
endanum og ég komst í þennan heim, heil á höldunum og hef nú svona
silgt í geggnum það svona frekar stórslysalaust það sem af er, þó
nokkur spor í höfuðið, einu sinni á hækjur í smá tíma og nokkur
umferðaróhöpp (sem hafa reyndar flest farið betur á horfðist).

Þetta ár hefur nú bara verið alveg asskoti viðburðarríkt: ég útskrifaðist
tvisvar ú Borgó, fyrra skiptið af margmiðlunarhönnun og það seinna
stúdent, var aðstoðarkokkur í sumar og fékk alveg helling af peningum
(sem ég hef ekki hugmynd hvert fóru :( ), fór að vinna á leikskóla sem
mér finnst bara gaman :) , fór á Hróarskeldu sem ætti að vera skilda
fyrir alla einu sinni á æfinni, fór aftur til Danmerkur í nóvember á
árshátíð Hótel Búða og komst að því hvernig er að vera á hóteli
Ístergaðe (mæli ekki með því, nema að þú viljir hafa sem styst í
gleðikonurnar ;) ), ég komst inn í skóla í Flórens og byrjaði að fá grá
hár af öllu því sem ég þarf að gera áður en ég fer út, lennti í
bílslysi og slapp ótrúlega vel, fór að taka tennur aftur og it hurts like hell :( (fór að finna fyrir einum endajaxl í morgun).
Geri að aðrir betur ;)

Jamm, núna ætla ég að fara að finna mér eitthvað gott að borða.

Laters!!!!!!!!!!!!!!!!!

Til hamingju með daginn :)

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 7:22 pm

Stolt móðir mælir: 

 

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag ;)

Já,
litla barnið mitt á afmæli, hún er 22 ára gömul, er það ekki ótrúlegt
að það skuli vera liðin 22 ár ;)   Finnst þér það ekki, mamma???

En
þrátt fyrir þessi ár er hún nú samt litlabarniðmitt :)   Þó að vísu
hafi hún nú ákveðið að slíta naflastrenginn og ætlar alla leið til
Flórens ;) í haust.  

Vonandi fannstu sætuefni og getur gert
þér eitthvað gott!!!! En hvenær ertu ekki að gera eitthvað gott í
gogginn ;)   ég vildi að ég gæti verið í mat  hjá þér :)

Smá
fréttir af mér persónulega:  Brjálað að gera í fundum og
ferðalögum en á morgun mun ég hefja göngu mína til lokatakmarksins, það
er sem sagt að byrja 10 vikna námskeið í Grundarfirði og ég ætla að
taka síðustu 10 kg núna fyrir ferminguna hans sonsa ;)

 

26. mars 2006

Gaman gaman!!!

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 10:05 pm

Gunnsý skrifar:

 

Ég fór á ball í gær á Skaganum og það var bara geggjað
skemmtilegt :D :D :D :D :D Kungfú var að spila og þeir eru náttúrulega
bara geggjað góðir og halda stuðinu alveg allan tíman. Ástæðan fyrir
ballinu var sú að ungfrú Vesturland var kosinn í gær og held ég að hún
heiti Heiða Rós sem vann (ekki alveg viss samt). En það var bara
geggjað stuð og ég dansaði allan tíman :D (enn meiri von til þess að ég
komist í tveggjastafa töluna á þriðjudaginn :D )

 

Ég bjó til bara geggjað áðan, bleikan appelsínuís með
grænni lakkríssósu, jarðaberjum og perum :D það bara geggjað gaman að
borða þetta :D

 

 

 

 

Bleikur appelsínuís með grænni lakkríssósu, jarðaberjum og perum :D

 

 

25. mars 2006

Mæling

Flokkað undir: Um daginn og veginn, Vigtun — by Gunnsý @ 11:41 am

Gunnsý skrifar:

Var að mæla mig og á síðasta mánuði láku 12.5 cm af fitu af mér :D ekki slæmt. Þá eru það samtalst 75.5cm síðan ég byrjaði farnir, reyndar alveg öruglega meira því ég er að nota tölur frá því síðasta vetur og þá var ég ekki eins stór og ég var þegar ég byrjaði nýjan lífstíl í september :D …………. svo þetta er líklegast að verða komið nálægt hundraðinu sem ég er búin að missa í cm :D :D :D :D :D :D

Myndir ……………. myndir ………………. myndir!!!

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 9:57 am

Gunnsý montar sig :D :
    

Fyrsta er tekin í september og sú síðasta í gær kvöldi og svo hina svona með reglulegu milli bili :D

En svo svona smá sprell í lokinn, Evrovision myndbandið okkar er komið á netið ………………….. allt lekur nú á netið.

Hér er linkurinn :D http://www.b2.is/?sida=tengill&id=155765

24. mars 2006

Pælingar

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 10:49 pm

Gunnsý skrifar:

Ég fór á kaffihús í gær, sem er nú ekkert til frásögu færandi, og hitti tvær vinkonur mínar úr MH og við fórum eitthvað að ræða megraun og DDV og eitthvað þess háttar og síðan fór ég að tala um að að mér hefði ekkert fundist ég vera feit þegar ég var feitust.
Málið er að mér fannst ég ekkert vera feit, talan var há  á vigtinni og ummálið var mikið en samt upplifði ég mig ekki feita, ég taldi mig alltaf fela þetta, en það er náttúrulega takmörk fyrir því hvað maður getur falið. Ég man líka eftir því að mér var mjög illa við allar myndir og það var bara vegna þess að ég vildi ekki sjá hvernig ég leit út í alvörunni og mér fannst ég ekki vera svona feit eins og ég var á myndunum.
Þetta sýnir það bara hversu svakalegri sjálfblekkingu maður getað lifað í og núna finnst mér ég bara vera orðin grönn þrátt fyrir að ég eigi tæp 30 kg eftir. En líklegst þarf maður á þessari sjálfsblekkingu að halda til þess að geta farið á fætur á morgnana og lifað dægin af, því ef við hefðum ekki temmlegt magna af sjálfblekkingu myndum við leggjast upp í rúm og líklegast ekki standa þaðan upp aftur :|

En eins og maðurinn sagði: ALLT ER GOTT Í HÓFI :D  

Dagurinn í dag var annars vona skít sæmilegur, smá slappleiki eins og í gær og svona vanlíðan svolítil en ekkert sem ég gat ekki höndlað :) þurfir reyndar að vera í eldhúsinu frá hádegi og til 4 og hafði ekkert allt of mikið að gera :( og var þar af leiðandi alveg að sofna inni eldhúsi :( ………………………. en ég ætla sko að sofa út á morgun og það skal sko enginn trufla mig við það ……………… nema þá helst pissublaðran kl. 9 í fyrramálið, samt alltaf fínt að vita til þess að maður getur bara skriðið aftur upp í rúm og haldið áfram að sofa …………………. ég er líka með Harry Potter í láni og get legið yfir henni um helgina …………………. ætla nú samt að reyna að fara að botna eitthvað í LÍN-lánum, lesa reglur og eitthvað þess háttar svo ég sé ekki alveg eins græn í þessum málum :| ……………….  get ekk sagt að ég hlakki til :(

Jæja, núna ætla ég að fara niður í þvottahús að hugsa um eitthvað af öllum þessum þvotti mínum, en í fyrsta skipti síðan ég fór að þvo fötin af sjálfri mér þá þreif ég 2 fullar vélar af dökkum fötum og síðan 2 hálfar af ljósu (hefur alltaf veriðið ein af hvoru) en núna á ég bara orðið svo mikið af fötum sem ég get orðið notað að það er allt að verað fullt :) ……………… og það er sko bara gaman :D …………………….. reyndar alveg slatti sem ég get farið að pakka niður líka :D :D :D :D :D :D :D

Góða helgi og góða nótt

P.S. Mamma ég átti alltaf að eftir að segja þér að til þess að láta broskarlana virka þá verður að vera bil sitt hvoru megin við þá :D

23. mars 2006

Hálf slöpp

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 7:41 pm

Gunnsý skrifar:

Jamm, ég er eiginlega hálf slöpp (ætla rétt að vona að ég fari nú ekki að leggjast í þessa bölvuðu pest sem meiri hlutinn af krökkunum er búið að liggja í :( ) En þannig er nú mál með vexti að á mánudaginn voru aðeins 9 börn sem mættu á deildina mína og í dag voru þau komin upp í 17 af 23 börnum, og það er sko allt í gangi: skarlatssótt, inflúensa, lungnabólga, ælupest og bara nefnið það, þau hafa legið í þessu “greyið börnin mín”.
En ég skal sko ekki verða veik, hef sko engan tíma í svoeiðis lagað og nenni því í þokkabót ekki :|

En hvað um það, ég krosslegg bara fingur og vona það besta. Ég var að enda við að gera skyrkökuna mína góðu og bætti bara við hindberjahlaupi ofan á og núna er hún í ísskápnum að stífna og ég hlakka sko ekkert smá til að gæða mér á henni, er búin að borða grænmetið og verði mér alveg geggjaða sósu ofan á (sýrður og öll þau krydd sem mig langaði í :) ) og svo á ég í þokkabót eftir 1/2 mjólkurskammt, 1.5 ávöxt og 1/3 fituskammt svo það verður eitthvað gúmmelaði hjá mér í kvöld :D

En núna nenni ég ekki þvaðra meira …………….. vona að það verði svona veisla hjá ykkur eins og mér :D

Ciao ……………………. (byrjuð að æfa mig í ítölskunni ;) )

22. mars 2006

Sagðist mundi skrifa fljót aftur !!!

Flokkað undir: Um daginn og veginn — by Gunnsý @ 11:11 pm

Gunnsý skrifar:

Alltaf þurfum við mæðgurnar að vera eins, ég er líka haust alveg eins og mamma :)

You Are Fall!
Thoughtful
Expressive
Creative
Poetic
Smart

What Season Are You?

Jamm, sennilega erum við ekki bara líkar útlitslega heldur líka eitthvað andlega :D

Næsta síða »

Knúið af WordPress.com