Jæja, þá er sukkinu mikla og langa, lokið!!!!!!!!!!!!!!!
Ég er núna í afeitrun, er hætt að borða nammi og kex og hef minnkað pepsi-max drykkju um að minnsta kosti helming. Þetta hefur verið ömurlegt sumar með tilliti til áts og þyngingar, en það er engum um að kenna nema mér, ekki satt
En búið er búið og nú ætla ég að koma mér af stað aftur. Er ekki alveg orðin dönsk aftur en hef tekið inn grænmeti aftur og svona ýmislegt annað ddv-vænt.
Hún Gunnsý mín er núna búsett í Flórens og það er mjög skrýtið, ég skrapp til Rvíkur á miðvikudaginn og ég hugsaði nokkrum sinnum: jæja, ætli Gunnhildur sé búin í vinnunni!!!!!!!!! en svo rann auðvitað upp fyrir mér að hún væri alls ekki á Íslandi. En þetta hlýtur að venjast
Sonsi hefur verið í boltanum og frjálsum í allt sumar, varla verið nokkuð gagn í drengnum
Ljósið mitt er nú mikið til heima, en hún fór til Danmerkur og í Galtalæk og svo einhverjar heimsóknir til vinkvenna
Og svo örverpið, hún stækkar og verður frekari, (eða er það að vera ákveðin!!!!!!!!!) og vill bara komast í sund og leikskóla. Ætli hún verði sunddrottning eins og Anja frænka
??? Og leikskólann dáir hún og dýrkar, þó svo að strákarnir sláist nú svolítið, hahaha
Og svo stærstu fréttir sumarsins eru auðvitað þær að við hjónin tókum okkur sumarfrí
Við fórum til Köben, og hvílík dásemd, hiti, sól, afslöppun, göngur, bátsferð, veitingastaðir, tívolí, verslunarferðir, o.fl.o.fl.
Jæja, skjáumst nú vonandi oftar á næstunni, Bjarta að koma sér í gírinn!!!!